fimmtudagur, júní 08, 2006

Ferð af´lýst!!

Stelpur mínar mér þykir leitt að tilkynna að sumarbústaðarferðin er hér með aflýst, vegna dræmrar þáttöku. Einnig gekk erfiðlega að fá bústað en sá sem að ég var með í huga var ekki laus eftir allt saman.....
En hvað segja gullkonur um að hafa þessa ferð bara í ágúst ?? Ég þarf að fá smá ríspons við þessu, endilega láta mig vita hvenær þið komist og hvaða tími hentaði ykkur best!
Mér þykir þetta leitt með ferðina en svona er þetta að vera í stórum og góðum vinahóp :) Vona að sem flestar lesi þetta og látið orðið ganga um kanseluna......
Kæja

laugardagur, maí 20, 2006

Sumarbústaðarferð :)

Jæja gullkonur, það mætti halda að jörðin hafi gleypt hverja og eina ykkar.......
En ekki mig!!!! ég reyni ennþá að halda lífi í þessum annars vel kólnuðu kolum.....
En stúlkur örvæntið ekki, fyrir þær ykkar sem að ekki eru í yðrum jarðar, þá er planið að smella sér í sumarbústað. Ég er með nokkra í huga en þeir eru slotið dýrir þar sem að þetta eru ekki bústaðir sem að eru niðurgreiddir af einhveru stéttarfélagi..... svo ef einhver þekkir einhvern sem að þekkir einhvern ;)
En annars þá er þetta helgin 23-24 júní, annað hvort þá föstudagsnóttin eða laugardagsnóttin eða jafnvel báðar ef áhugi er fyrir því!!!!
Svo stelpur nú þurfum við að taka höndum saman og virkilega fara að hittast meira og svona. Ég er ekki viss um að ég myndi þekkja ykkur út á götu, svo lang er síðan ég sá sum andlitin.......
Nú vil ég að allar þær skvísur sem ætla með(það beilar náttla enginn) að skrá nafnið sitt hérna í kommentakerfið og láta í sér heyra !!!!!
Með sumar og innri gleði í hjarta
Karen Óska
p.s ekki skemmir fyrir að við erum að fá eina vel ljóshærða og fallega heim aftur, eftir langan tíma í útlandinu :)

miðvikudagur, febrúar 15, 2006

--------->AmmælisPartEY!!!!<----------

Loksins er komið af því dömur mínar kærar. Ammælispartýið er í nánd og kominn tími til að bjóða ykkur gullkonum í það :)
Ammælið byrjar kl hálf átt og þá verða heitir réttir á boðstolnum ásamt smá kökum, svo ekki koma saddar ;) Bolla verður á staðnum(áfengis bollan þar að segja, olla bolla gat því miður ekki komið :(....)
Gleðin verður heima hjá mér í Hvassaleitinu 55.
Svo núna er um að gera að koma sér í gírinn fyrir svaka djamm :) Aldrei þessu vant verðum við umkringdar strákum, því boðnir eru um 20 strákar úr RogT, svo að það ætti ekki að físa um ykkur single dömurnar ;)
En allavega vonast til að sjá sem flestar gullkonur og væri gaman að sjá hversu margar ælta að mæta, tek engar afsakanir um beil gildar, nema kannski dauðsfall.
Stelpur, einn ,tveir og þrír--------->Byrjið að kommenta NÚNA :)
Kveðja Karen tuttuguogtveggjaára

mánudagur, janúar 30, 2006

Ráð frá Golden mama

Sko, dísa mín!! Þetta er ekki flókið. Það eina sem að þú þarft að gera, er að fara inn á blogger.com og skrifa þar inn notendanafnið þitt og lykilorð. Þegar það er búið, kemur upp síða, þar sem að þú smellir á linkinn Gylltu dömurnar og þar ferðu beint inn á posting svæðið eða "skrif svæðið" Þar skrifaru bara allt sem að þér liggur á hjarta og svo þegar þú ert búin þá ýtiru á Publish Post. Þá er þetta nú bara komið sko :)
Og ég hvet allar gylltur til að tapa sér hér á þessu bloggi, því að bráðum mun Golden mana lyppa upp á þessa blessuðu síðu. Sumarið er komið.......og farið......!!
Ætla ekki að ljúga en gullkonur munu standa á öndinni vegna fegurðrar bloggsins :D
Ekki meira að sinna, ætli maður fari ekki að koma sér í að forrita Lottókerfi(hver sagði svo að það væru bara nördar í rafmagnsverkfræði?)
Over and totally out

a.k.a Golden mama

mánudagur, janúar 09, 2006

Hvar eru gullkonur?

Vil byrja á því að óska gullkonum hjartanlega til lukku með nýja árið og vona að það hafi farið vel af stað. Væri alveg til í að heyra meira í gullkonum hérna á blogginu, vantar soltið neistann í þetta hjá okkur. Ég veit að það hafa allir frá einhverju að segja, þarf ekki að vera nema: Hæ ég er á lífi.
Nú fer að styttast í ammælistörnina og ég ætla að frátaka hjá öllum þann 11.febrúar 2006. Þá mun ég eiga afmæli og ætla að bjóða til festar. Takið frá daginn stúlkur mínar, aldrei að vita nema það verði nokkrir fagrir verkfræðinördar inn á milli okkar glæsikvendanna.
Væri alvg til í hitting bráðlega með gullkonum??

Kæja

laugardagur, nóvember 26, 2005

jæja pæjur!!! jih ég missi alltaf af hitting! finnst það ömó! en hvað er að frétta af jólahitting? éger totally geim ;) búið að ákveða eitthvað skemmtó????
kisskiss;)

laugardagur, nóvember 05, 2005

PARTÝ!!

Sælar gullskvísur nær og fjær. Í kveld verður gleðskapur hjá mér fyrir gylltar konur. Gleðskapurinn hefst í kringum 10 og verða ekki veittar veigar né súludans. Vonast til að sjá sem flestar.
Vil líka varpa fram einni spurningu, hvernig líst gullkonum á að hittast á milli jóla og nýja ársins ????? Verða þá ekki flest allar gullkonur á landinu ?? Allavega látið heyra í ykkur :)
Karen, í stuði með guði, jó!